ég átti afmæli í gær ég átti afmæli í gær ......................
en þetta var alveg rosalega góður dagur sem ég átti í gær, ég var bara að vinna minn vinnudag og svo fór ég heim að undirbúa veislu sem heppnaðist alveg rosalega vel, við vorum bara með tortillias og svo gerði viðar alveg ótrúlega góða tertur fyrir mig :) súkkulaðitertu og jarðaberjaterta phh það var svo gott :) en það var fjölskildan mín og gísla sem komu og er það bara nóg því það er góður félagskapur :) en ég er bara mjög ánægð með þetta :) alveg frábær dagur en það er önnur helgi komin úff hvað þetta er fljótt að líða en það er alveg ágætt, ég fór með ragga og ingu tinnu að borða á hraunsnefi á þriðjudaginn það var mjög gaman, mjög flottur staður...
en við erum búin að plana að fara út saman í ágúst og stefnum við að 8 ágúst, en raggi og inga tinna ætla að vera í eina viku en ég og gísli í tvær úff hvað það verður gaman :) hlakka ekkert smá til :)
en jæja það er svo gott í tv..
hilsen
BÍLINN KOMNINN HEIM
hæhæ
jæja bíllinn minn er fundinn :) hann fannst fyrir nokkrum dögum í höfuðborginni, og var allt dótið mitt í honum nema myndavelin mín :( en ég er fegin að hann sé komin heim, en við samt vitum ekkert hvar hann var í reykjavík það var einhver dráttarbíll sem dró hann niðrá lögreglustöð eina nóttina, þannig við fáum ekkert að vita fyrr en við fáum reikningin frá dráttarstöðinni.
en það er nóg sem búið er að gerast :) við fórum á síðustu helgi í ógleymanlega ferð, við lögðum af stað frá borgarnesi á föstudeginum og var ferðinni haldið á varmahlíð það voru ég aðalbjörg, gísli og svanberg og fórum við í bústað sem var þarna rétt fyrir ofan varmahlíð, rosalega flottur bústaður :) og var það alveg voðalega kósi strákarnir byrjuðu á því að grilla fyrir okkur alveg dýrindis hamborgara :) og svo var það öllari og spil og svona, fórum í sínu haha langt síðan ég fór í það, og stóðum ég og svanberg okkur eins og hetjur, en svo á laugardeginum þá hittum við restina af hópnum því það var mímisferð og fórum við í rafting, það var rosalega gaman og góður mórall í hópnum þó sumir hafi verið hræddir en aðrir :) nefni engin nöfn, en þetta var mjög skemmtileg ferð, ekkert erfið eða erfiðar flúðir en samt gaman, en svo fórum við bara á varmahlíð og fengum okkur að éta. en aðalbjörg ákvað að fara svo heim með hinum krökkunum, þannig þá var ég svanberg og gísli eftir, og voru strákarnir fljótir að leggjast upp í rúm og leggja sig aðeins, en ég byrjaði bara á bók og náði að klára hana :) mjög ánægð með það en svo var það bara dútl um kvöldið heiti potturinn og svona, en á sunnudeginum þá lögðum við af stað um hálf tíu til að hitta annan hóp af krökkum hér frá borgarnesi og þá var ferðinni haldið á aðra raftingstöð og fórum við í erfiðari ánna :) tók einhvern klukkutíma að keyra á byrjunarpunkt og það má segja að þessi ferð hafi verið alveg rosalega, ég get sagt það núna að hún hafi verið alveg rosalega skemmtileg en ég er ekki viss um að ég hefði getað sagt það meðan ferðinni stóð... þetta var alveg svakalega erfitt, lentum oft ofan í vatninu og héldum við öll að þetta væri okkar síðasta, ég allavega persónulega var alveg skíthrædd eitt skiptið sem ég datt í einni flúðinni, ég helt að þetta væri mitt síðasta, átti ekki nema nokkrar sekúdur eftir af lofti :( var alveg rosalega hrædd, en það þíddi ekkert að hugsa um það því að ferðin helt áfram og við vorum ekki einu sinni hálfnuð þegar það gerðist og það átti eftir að gerast aftur haha.. ótrúlegt hvað maður leggur á sig, held að strákarnir hafi allir gleymt því hvað þeir voru rosalega hræddir því þeir eru að spá í að fara aftur í lok sumars, ég held bara að ég meiki það ekki, maður er búinn að prufa þetta og það er óþarfi að gera þetta aftur haha :)
nóg í bili...
au revoir
HUMMMMMMMM
STOLINN BÍLL!!!!
þannig ef þið hafið einhverjar upplýsingar um hvað hefur orðið um hann viljiði þá vera svo væn að hringja í 869-8646, eða 437-2020 ....
Takk fyrir :)
Josh Groban
ég var ótrúlega ánægð með það að skella mér, því þetta var alveg peningana virði.
bara tónleikarnir í heild sinni, hljómsveitin sem hann var með, ljósasjóvið og allt mér fannst þetta alveg æðislegt, og það sem mest er sjokkerandi við þetta er að ég fór ein á tónleikana haha, eða mér fanst ekkert að því en fólkinu í kringum mig fannst þetta svolitið skrítið, en maður nýtur þess betur að vera bara einn.. :) en ég verð að viðurkenna það að meðan tónleikarnir stóðu þá var ég byjuð að ýmida mér líf okkar saman haha og ég get sagt ykkur það að í mínum draumum þá var það gott :) sorry gísli... haha
en ég mæli með þvi að fólk kaupi diskinn hans þeir eru ótrúlega góðir, eða mér finnst það allavega, enda finnst sumum ég hafa furðulegan tónlistasmekk en það er bara þeirra mál...
en hugsa að ég segi þetta gott í bili..
au revoir
i'm back :)
vá ég var næstum bara búin að gleyma þessu bloggi haha, það breytist allt við að koma heim, maður vaknar, fer i vinnuna, fer í íþróttahúsið, heim að borða, horfa á sjónvarpið og sofa. haha þetta er rútinan mín, en það er samt meira búið að vera um að vera her í bgn en venjulega :) búin að fara á djammið tvisvar ótrúlegt en satt og svo komu viðar, hrafnhildur, andri snær, annabella og patrekur til okkar um daginn og voru her í 10 daga og fóru í nótt, það var alveg æðislegt að hafa þau en reyndar það verta var að tíminn var alltof fljótur að líða :( en það var gaman hjá okkur. er stödd núna hjá sóley var að leika smá við mína yndislegur isabellu :)
það var ball á venur á laugardaginn, og fyrirparty hjá ungum sjalfstæðismönnum frír bjór og læti.
en mig dauðlangar að fara til rvk í vikunni og fara á einhverja ótrúlega góða myn, er einhver mynd sem þið mælið með ????
síðasti þáttur af oc áðan, hann var bara mjög fínn, en verst að ég er bara búin að horfa á 2 þætti í þessari seríu, og dauðlagar að kaupa mér síðustu seríu af one tree hill og greys anatomy, hræðilegt að vera búin að missa af þessu, því mar er svoltíð sjónvarpsjúkur.
en gísli er að koma, skrifa eftir mánuð haha.
hilsen
komin heim
það er voðalega gott að vera kominn heim, er bara að vinna og svona, voðalega skrítið að vera kominn aftur en samt gaman...
en eina sem ég get kvartað yfir er að maður gerir svo lítið haha, en þó náði ég að draga gísla með mér á leikrit hjá krökkunum í óðal, þetta var mjög fínt hjá þeim. og svo um kvöldið þá fórum við á hörkuleik hjá stelpunum á móti KR og vá þetta var svakalegt, og endaði með að við unnum þær með 2 stigum, en þó vorkenndi ég KR stelpunum smá, hefði ekki viljað vera í þeirra sporum þar sem þær hefðu unnið 1 deild og og komist upp, þannig það var svolítil sorg í fjósinu eftir þennan leik, en líka alveg hrikaleg ánægja, vá ég var alveg að farast og kláraði næstum allar neglurnar, haha en hann endaði þannig að KR náðu að jafna og þá voru held ég einhvað um 15 sek eftir, og íris gunn fekk boltan og var ekki að vita hvað átti að gera haha, en þá ákvað mín bara að taka eitt svakalegt skot þegar 3 sek eða einhvað voru eftir á klukkunni og hún hitti, HAHA þetta var algjör snilld, en það er hægt að sjá video af því á skallagrimur.org :)
ég og gisli fórum í gær til rvk því hann var að útskrifast úr sveinsprófinu. en þetta var roasalega flott athöfn og nóg af drykkjum í boði, en sigga var driver puhu... en svo var eftirpartý og gísli fór í það á meðan þá fór ég í heimsókn til laufey og kíkti á bumbubúann hennar. ótrúlega myndarleg.
en í gær þá komu raggi og inga tinna, og ég var fljót að hella einhvað sterkt í glas fyrir strákana til að hafa þá góða meðan ég og inga tinna fórum til lóu, þar voru elva og heiðrun líka, ótrúlega skemmtilegt að koma svona saman stelpurnar og bara að hlægja og hafa gaman. en svo lá leiðin heim og drukkið einn bjór og ostar og snakk og svona :)
en jæja hef ekki meira að segja.
au revoir
DANMÖRK HERE I COME
kom í gær frá Barce átti þar góða stund í 3 daga með heiðrunu, sesselju, einari, ása og óðinni.
þetta var allt saman voðalega gaman, nema eitt, það var eins og hellt úr fötu allan tímann, við bara slepptum ekki regnhlífunum, þannig það var frekar leyðinlegt en það reddaðist, við bjuggumst bara við glampandi sól :) en þetta var bara alveg rosaleag skemmtilegt, góður endir á góðri ferð til france. það sem var aðallega á dagskrá voru búðir, siggz var alveg að missa sig á þessu, húff ég ætlaði ekki að versla neitt og endaði svo á að kaupa mér slatta. en jæja maður lifir bara einu sinni og á aldrei nein föt þannig þetta var í góðu lagi. en einn daginn fórum við stelpurnar saman út að borða á einn mjög rómantískan stað, maturinn var æðislegur en það voru aftur á móti eftirverkanirnar sem fóru í okkur ollalla, því það var bara upp og niður sko... :( en sem betur fer náði það að klárast áður en ég fór í lestina. hefði ekki nennt að standa í því. en við komum heim um 9 í gærkvöldi, og ég var í engu stuði til að fara að segja bless við alla krakkana þannig ég bara ætlaði að senda þeim sms en þá fekk ég skemmtilega heimsókn um kvöldið þar sem martin, bavo og vinur þeirra komu til mín til að kveðja voru ekki sáttir haha...
en það bara var ekki orka í gær að fara einhvað út og kveðja alla.
en ég svaf í miriams rúmi í gær, voðalega þægilegt að sofa svona einn HAHA sorry heiðrun, en hún leifði mér aldrei að kúra á sér, ýtti mér alltaf í burtu, en ég hefði gert það sama ef einhver væri alltaf að lauma löppunum á mig og segja pour moi pour moi HAHA mér finnst þetta algjör snilld svo var ég alltaf að rúlla á hana og svona, þannig aumingja ég fæ ALDREI aftur að sofa í sama rúim og heiðrun...
en fekk hringingu í gær sem sagt var að það hafi kviknað í geirabakarí, úff sem betur fer fór það ekki verra, alveg hræðilegt, en þá langaði mig smá að fara heim til að hjálpa, en það var verið að þrífa allt langt eftir kveldi og mála allt upp á nýtt og svona, því að pabbi minn ætlar að opna aftur í dag. hann er svo duglegur kallinn :)
en svo er ég að fara til dk núna eftir nokkra tíma,er að bíða eftri að andrew fari upp í skóla að vinna því ég þarf að kvitta undir einhvað og svona, og svo segja bara bless.... en denny ætlar að keyra mér sem er alveg æði, ÞVÍ ÉG ER MEÐ SVO MIKIÐ AF TÖSKUM ég veit ekki hvernig ég á eftir að lifa þetta af mar.
en frakkland er búið að vera alveg æðislegt og það líður alveg ótrúlega fljótt, búin að kynnast fullt af fólki sem ég á eftir að vera í sambandi við alltaf. bara æðislegir vinir, og það er búið að vera svo gaman, nóg af hlutum gerðir. og það var bara verið að njóta lífsins til fulls.
krakkar ef þið lesið þetta þá vil ég bara þakka fyrir mig, þetta er búið að vera alveg æðislegt að eyða þessum tíma herna með ykkur.. en þetta verður gert aftur :) reunion 2008, ég veit ekki alveg hvernig mér á eftir að líða með það að fara ekki alltaf í háldegismat með öllum, og vera alltaf að hittast út að borða, ,lég á eftir að þurfa að aðlagast mjög mikið haha... en koss og knús og við sjáumst eftir nokkra daga:)
það á eftir að vera ótrúlega skrítið að fara heim í einhverja rútínu, ekki alveg að virka núna í hausnum á mér, en við sjáum hvernig það fer..
au revoir
úmbarassa úmbarassa
vitiði það fólk að það er búið að vera svo gaman herna síðan ég kom aftur, þetta er æðislegt :)
en já það var skóli á mánudaginn og var það bara ótrúlega gaman að koma aftur, sagði einmitt við kennaran að ég bjóst aldrei við að segja þessi orð, ánægð að vera í skólanum, en ég get ekki sagt það að dagurinn í dag í skólanum hafi verið góður því ég var að springa, held að ég hafi aldrei vitað hvað var verið að tala um í dag, en ég og heiðrun erum saman í bekk og með okkur er fólk frá tekklandi, hungverjalandi og irlandi, en í gær kom í hópinn 5 krakkar frá bretlandi eða einhvað og þau eru búin að læra frönsku frá því að þau voru 11 ára, þannig dagurinn í dag var með mjög erfiðu námsefni og ég kom alveg af fjöllum og vissi ekki baun, því náttla við erum ekkert á sama leveli og einhverjir krakkar þarna inni, þá er þetta frekar glatað, en ef þetta breytist ekki á morgun þá ætla ég að segja einhvað því maður græðir ekkert á þessu.
en já húff mánudagurinn hummm, ég var með heiðrúnu allan daginn við fórum eftir skóla og keyptum okkur slúðurblöð og settumst í einhvern garð og vorum þar í slatta tíma var svo gott veður svo tók við matvörukaup og fórum heim til hennar og elduðum okkur mat og horfðum á mynd í tölvunni minni, en um kvöldið fórum við á cafe joseph og hittum, veru, denny, andrew, og svo nýju krakkana og kennarann þeirra. en þar var okkur boðið upp í nokkur hvítvínsglös og svona, og það var nú bara allt í lagi en svo var klukkan orðin eitt og ég ætlaði nú ekkert að vera lengur en það haha, en svo fóru heiðrun og danny heim og sigga vildi bara ekki fara haha, þannig andrew kom með þá hugmynd að fara bara upp í skólann og drekka þar hvítvín sem hann á :) og mér fannst það bara alls ekki slæm hugmynd haha, þannig við fórum þangað ég andrew, vera og svo kennarinn hinn, en það sem ég skil ekki eru svona miðaldra menn sem bara skilja ekki hint haha, þessi kent hinn kennarinn var bara allan tíman einhvað að reyna og ég bara gat ekki gert mig meira skiljanlega haha, reyndar voru allir orðnir asskoti fínir haha, en ég náttla bara hló að þessum manni haha, en hann bara vildi ekki skilja nei, en hann fattaði það svo í lokinn haha.
en ég get ekki sagt að ég hafi verið í góðu stuði í gær, hef aldrei drukkið bara hvítvín og hef komist að því að það er ekki fyrir mig góð þynnka skal ég segja ykkur. en svo í dag hitti ég kent í skólanum haha og ég grenjaði en eg samt sagði ekki hæ við hann og hundsaði bara hafi ekkert að segja við hann, og heiðrun sagði mér að hann var alltaf að horfa og greinilega skammaðist sín mikið haha en það er bara gott. :) en ég er að fara með krökkunum í skólanum í vínsmökkun á eftir :) en það verður bara rólegt, en samt þetta er alltaf sagt þannig ég veit ekki hvernig þetta endar :) allavega er verður maður helst að mæta í skólann á morgun :)
en í gær fórum við í dýragarðinn ég, heiðrun og line, og það var alveg bara rosalega gaman, og nokkur merkileg dýr sem við sáum þarna. en eftir það þá fór line að vinna og ég og heiðrun forum út að borða og svo í bíó á 300 og jesus minn almáttugur, ef að stólarnir okkar hafa ekki verið gegndrepa þegar við löbbuðum út haha þá veit ég ekki hvað :) en úffff hvað mennirnir eru flottir, þetta er svakalegt, en samt mjög góð mynd og allt það, en bara VÁÁÁÁÁÁ stelpur þið verðið að fara á þessa mynd !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!111
en já dagrún barcelona það er þannig að við ætlum að fara á næsta sunnudag, ég, heiðrun, sesselja, einar og vinur þeirra og ætlum við að fara á einhvern fótboltaleik og versla og skoða, og koma svo aftur á þriðjudaginn þar sem tekur við kveðjuparty fyrir mig :) andrew ætlar að plana einhvað skemmtilegt
jeyyyyy nóg af djammi þar til ég fer haha svoleiðis á það að vera, en svo er það dk á miðvikudaginn eftir viku húff hvað þetta er stutt í þetta..
en ég ætla að fara að hafa mig til..
og nenniði plís að vera dugleg að kommenta annars hætti ég að blogga haha :)
komin í MPL
jæja þá er ég komin i MPL, denny og heidrun komu að ná í mig áðan :) reyndar viltust þær einhvað á leiðinni þannig þetta tók svolítið langan tíma en það var allt i góðu ég beið bara og vann einhvað á meðan, en manni (semsagt bossinn minn) hringdi í mig þegar ég var búin að vinna og spurði hvenær ég færi og ég sagði orugglega eftir korter og hann segjist vera að koma því að ég þurfti víst að fá einhvern pening fyrir þetta, og hann birtist með umslag réttir mér og fer svo aðeins í tölvuna og búid og segjir bara bless og fer haha :) mjög fyndið, en svo komu stelpurnar rétt eftir það, og tók þá við 30 min keyrsla til MPL, og nuna er ég stödd heima hja kristinu og mun eg bua þar i viku, en miriam er onnur stelpa sem er herna, helt að hun ætti ekki að koma fyrr en í næstu viku, en eg gisti allavega bara inni hjá kristinu :) voðalega næs haha, en það er fínt mín vegna og ég held að það sé ekkert að bogga hana þannig það er bara fínt. en á morgun tekur við skóli :) talaði við andrew skólastjóra í dag til að vera alveg hundrað að það væri í lagi að ég kem, svo sendi ég honum sms áðan og spurði hvort ég gæti farið í bekk með soniu sem kennara sem kenndi mér 2 vikur áður en ég hætti því hún var svo fín, og svo sendi hann mér til baka já ekkert mál, dont be so demanding always haha en það er bara ég :)
gísli bað mig um að taka myndir af pöddunum og svona haha, þannig ég gerði það :) fann þarna einhverjar pöddur þegar ég var að fara og tók myndir :) þannig það ætti að vera komið inn í kvöld, ef ekki þá kemur það á morgun :) en ég er voðalega spennt að fara aftur í skólann og að vera með fólki úff ætli ég sitji ekki bara ein út í horni á morgun bara með sjálfri mér því ég er orðin svo óvon að spjalla við fólk... æjj nei ég einhvernvegin sé það ekki gerast :)
en á ég að segja ykkur ég er að borga contact europe 50 þúsund fyrir að finna vinnuna fyrir mig, vá ég fékk sjokk þegar ég heyrði þetta og það kemur ekki til greina að ég borga allan þennan pening því það fyrsta sem ég gerði var að hringja í hana aftur og spurja hvort hún hefði einhvað annað fyrir mig og ég fekk bara NEI þannig þetta er svolítið skrítið að maður eigi að borga þennan pening og þegja bara, en það á ekki eftir að gerast með mig, eg var alls ekki sátt með þjónustuna sem ég fekk þegar ég sagði henni að mér líkar ekki, það var ekkert gert fyrir mig, þannig mér finnst óþarfi að borga þeim allan þennan pening.
en jæja ég er alveg með internet aðgang herna hjá kristinu þannig það er alveg geggjað, að þurfa ekki að borga klikkaðan pening fyrir að fara á netið.
en ég skrifa fréttir að fyrsta skóladeginum á morgun :)
au revoir
já og bara svo þið vitið því að síminn minn bara stoppar ekki, alltaf svo margir vinir mínir að hringja í mig frá íslandi haha... þá er orðinn 2 tíma mismunur.
góða nótt